Busavígsla í nánd
Aj jæ jæ rosalega er gaman að vera ekki busi, vera skrælþurr og sjá yngri árganginn hundblautan, labbandi eftir þröngum línum á göngunum, vera rappaðir saman og límdir niður í gólf :) Alveg bara, Æðislegt alveg hreint... Skólinn byrjar fínt og þvílíkt gott að vera aftur með Láru í skóla :) Litla frænkan busi og er að reyna plögga stóru frænkuna í að kaupa hana á busauppboðinu sem verður á morgun :) kannski mar leyfi henni að klára að þrífa herbergið mitt eða e-ð :) Eða neeeee, held við myndum bara slá því upp í leti og horfa á endanum á FRIENDS :) Þannig það gengur ekki beint :) Rúnar minn að busa og hann ekkert lítið að fýla sig með þessari litlu vatnsbyssu sem honum var skaffað! Alveg sprautandi hægti vinstri á busana. En jæja, ég sé allt jákvætt út úr þessu, busauppboð á morgun, busavígsla og lítill skóli á föstudaginn, busamatur og busaBALL seinna á föstudagskveldinu þar sem Ísafol mun spila undir dansi :)
Jæja ég held ég slái þessu bara upp í leti og fari að leggja mig, alltaf gott að leggja sig eftir svona skemmtilegan dag í skólanum :)
-Salut
Jæja ég held ég slái þessu bara upp í leti og fari að leggja mig, alltaf gott að leggja sig eftir svona skemmtilegan dag í skólanum :)
-Salut

0 Comments:
Post a Comment
<< Home